
Little Vikings Travel
Þegar við byrjuðum að ferðast í húsbíl stofnuðum við Instagram-reikninginn Little Vikings Travel. Upphaflega var markmiðið einfaldlega að gefa fjölskyldu og vinum tækifæri til að fylgjast með ferðalögunum okkar. En smám saman varð reikningurinn að einhverju meira.
Í dag er Little Vikings Travel orðinn hluti af ByRagnar.com. Hér deilum við reynslu okkar af lífinu í húsbílnum okkar, Heilsubælinu, segjum frá ferðalögum okkar, sýnum búnaðinn sem við notum og deilum bæði því sem gengur vel og því sem við lærum á leiðinni.Velkomin í ferðalagið okkar.

Heilsubælið
Bíllinn okkar fékk fljótlega nafnið Heilsubælið, því þar leið okkur öllum svo vel. Hann varð fljótt meira en bara farartæki – hann varð staðurinn þar sem við slökuðum á, nutum samverunnar og söfnuðum ógleymanlegum minningum.

Búnaðurinn
Frá því við fórum í okkar fyrstu ferð höfum við smám saman bætt við búnaði sem gerir lífið á ferðinni bæði þægilegra, öruggara og skemmtilegra.

Litlu víkingarnir
Á bak við Little Vikings Travel er lítil fjölskylda með mikla ferðagleði. Hér getur þú kynnst okkur aðeins betur.

Ferðasögur
Komdu með okkur í ferðalagið. Hér segjum við frá stöðunum sem við heimsækjum, fólkinu sem við hittum og upplifuninni sem fylgir lífinu á ferðinni.
- Verkefnahefti fyrir börn í ferðalagi
Ertu að fara í ferðalag með börn og ert að velta fyrir þér hvernig þú heldur þeim uppteknum á leiðinni? Hér finnur þú frítt prentvænt verkefnahefti fyrir börn (7–10 ára) sem hjálpar til við að minnka… Read more: Verkefnahefti fyrir börn í ferðalagi - Húsbílaöryggi – persónulegt öryggi
Það er auðvelt að halda að öryggi í húsbíl snúist fyrst og fremst um búnað. Um lása, styrkingar, skynjara og viðvörunarkerfi. Og vissulega skiptir þetta máli – við höfum farið yfir það í þessari seríu. En… Read more: Húsbílaöryggi – persónulegt öryggi - Húsbílaöryggi – hurðir og lúgur
Eftir að gluggarnir eru orðnir aðeins erfiðari viðureignar færist athyglin oft annað. Þá horfa þjófar á hurðirnar – og ekki síst lúgurnar sem margir gleyma alveg. Þetta snýst ekki um að vera tortrygginn eða hræddur. Þetta… Read more: Húsbílaöryggi – hurðir og lúgur - Húsbílaöryggi – gluggar
Gluggar í húsbíl eru svolítið sérstakir. Þeir eru fallegir, léttir, hleypa inn ljósi og lofti — en því miður líka ein af veikustu vörnunum á öllu heimilinu okkar á hjólum.Þegar fólk hugsar um innbrot horfir það… Read more: Húsbílaöryggi – gluggar