Ertu að fara í ferðalag með börn og ert að velta fyrir þér hvernig þú heldur þeim uppteknum á leiðinni? Hér finnur þú frítt prentvænt verkefnahefti fyrir börn (7–10 ára) sem hjálpar til við að minnka skjátíma og gera ferðina skemmtilegri fyrir alla í bílnum.
Frítt verkefnahefti – hlaða niður hér
Erum við að verða komin???
Sá sem hefur einhvern tímann ferðast með börn kannast líklega mjög vel við þessa spurningu. Ferðin byrjar oft á spennu, hlátri og kannski góðu lagi í spilaranum sem allir syngja með. Stemningin er létt og allt virðist lofa góðu. En svo líður tíminn. Spennan dofnar aðeins, óþolinmæðin læðist inn – og þá byrja þessar „skemmtilegu“ spurningar að skjóta upp kollinum.
Ein af þeim klassísku er: „Hvað á ég að gera?“
Á þessum tímapunkti er yfirleitt stutt í símann. Það er einfaldasta lausnin – og við þekkjum það flest. En á sama tíma breytist ferðin oft úr samveru yfir í smá einveru, þar sem hver og einn er kominn inn í sinn eigin skjá.
Hugmynd sem varð að verkefnahefti
Fyrir síðustu ferð okkar ákváðum við að prófa eitthvað annað. Ekki eitthvað stórt eða flókið – bara smá tilraun. Ég settist niður og bjó til einfalt verkefnahefti fyrir dóttur mína, með það í huga að gefa henni eitthvað að dunda sér við sem tengdist ferðinni sjálfri. Eitthvað sem myndi halda athyglinni aðeins lengur og jafnvel kveikja smá forvitni um það sem var að gerast fyrir utan rúðuna.
Ekkert fullkomið. Bara eitthvað sem virkar í alvöru.
Úr varð þetta verkefnahefti sem þú getur nú hlaðið niður og prentað út.

Hvað er í heftinu?
Heftið er hugsað fyrir börn á aldrinum 7–10 ára og inniheldur blöndu af leikjum, þrautum og skapandi verkefnum sem halda athyglinni aðeins lengur en þessar klassísku tvær mínútur. Þar má finna bílabingó þar sem krakkar reyna að finna hluti á leiðinni, völundarhús sem þarf að leysa, myndir þar sem finna þarf villur og verkefni þar sem þau fá að giska, teikna og jafnvel búa til sína eigin sögu. Svo eru líka verkefni sem fá þau til að horfa út um gluggann, taka þátt í ferðinni og jafnvel hafa áhrif á stemninguna í bílnum.
Sum verkefnin eru róleg og henta vel þegar aðeins þarf að slaka á, á meðan önnur eru meira lifandi og geta dregið alla með í leikinn. Hugmyndin er ekki að fylla hverja mínútu – heldur að gefa ferðinni smá líf og gera hana að hluta af upplifuninni, ekki bara leiðinni á áfangastað.
Það sem kom mér kannski mest á óvart var hversu vel þetta virkaði. Það var ekki þannig að síminn hvarf alveg – við erum ekki þar 😄 – en hann fékk alvöru samkeppni. Og það eitt og sér breytti stemningunni í bílnum meira en ég bjóst við. Það urðu fleiri samtöl, meiri hlátur og einfaldlega aðeins meiri tenging á milli okkar.
Ef þú ert að fara í ferðalag og vilt prófa eitthvað einfalt sem getur minnkað skjátíma og aukið samveru, þá er þetta góð byrjun. Þetta kostar ekkert nema smá blek og nokkrar mínútur í prentun – en getur skilað miklu meira til baka.
👉 Hér geturðu hlaðið niður verkefnaheftinu frítt og prentað út fyrir næstu ferð.
Ef þetta reynist vel hjá ykkur væri virkilega gaman að heyra frá ykkur. Ég er alltaf að safna hugmyndum og bæta þetta áfram – því þetta byrjaði bara sem lítil tilraun, en gæti auðveldlega orðið eitthvað meira.


