Kæri lesandi,
Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja – en kannski er bara best að byrja á ástæðunni fyrir því að ég fer af stað með þessa bloggsíðu mína.
Ég hef alltaf verið hrifinn af hugmyndinni um frelsi. Mig hefur alltaf dreymt um persónulegt frelsi og endalaus ferðalög.
Þegar ég og konan mín tókum þá ákvörðun að selja allt, kaupa okkur húsbíl og leggjast í húsbílalíf, taldi ég mig heldur betur vera búinn að finna hið eina sanna frelsi.
Svo einfalt var það nú ekki. Það tók mig þó nokkurn tíma að átta mig á hvað vantaði, til að ég gæti kvittað undir þá kenningu að húsbílalífið væri hið fullkomna frelsi.
Það sem vantaði var kunnátta, undirbúningur, meðvitund og öryggi.
ByRagnar.com er mitt litla horn á netinu þar sem ég vil deila reynslu, mistökum og litlum sigrum sem tengjast húsbílaferðum – og ekki síst öryggi á ferðinni.
Mig langar að auðvelda öllum þeim sem eru að velta því fyrir sér að fara út í húsbílalíf, að undirbúa sig og hafa greiðan aðgang að upplýsingum á íslensku.
Það hefði auðveldað mér margt á sínum tíma að hafa þannig stað.
Hver er ég?

Myndin er tekin í sjónhverfingasafninu 3D Fun Art Museum í Lissabon
Ég er karlmaður í besta aldri, er giftur bestu konu í heiminum (algjörlega hlutlaus! 🙂) og á slatta af börnum og einn hund.
Ég er að austan, eins og það er orðað, og hef gengið í gegnum margt misgott – eins og allt of margir.
Þessi vefur minn er að nokkru leyti ákveðinn hluti af uppbyggingu minni og jafnvægisleit eftir erfiðan tíma.
Fyrstu ferðina okkar í húsbíl gleymi ég aldrei. Ég var stressaður, vanbúinn og hafði ekki hugmynd um hvað ég var að gera.
En samt kviknaði eitthvað – tilfinningin fyrir frelsi, einfaldleika og ró.
Ferðinni var heitið upp í Borgarfjörð, svona til að prufa græjuna og læra á fullt af tökkum sem ég taldi nú ekki vera flókið.
En annað kom í ljós, og þessa helgi sat ég sveittur við að átta mig á „öllu“.
Það sem næstu tvö ár áttu eftir að kenna mér var einfalt:
ég kunni ekki neitt – og átti eftir að læra svo margt.
Ég skildi t.d. ekkert í því að alveg sama hvað ég dældi miklu vatni á vatnstankinn, þá kom lítið sem ekkert í hann.
Þegar ég kíkti svo út, tók ég eftir að eitthvað lak.
Ég vissi ekkert hvað málið var.
Eftir töluvert „gúgl“ komst ég að því að það gæti verið einhver krani opinn – krani sem átti að verja lögnina fyrir frosti.
Viti menn – ég fann þennan andsk… krana, lokaði honum og eins og fyrir töfra fór tankurinn að fyllast og lekinn hvarf.
Af hverju öryggi?

Ég hef lært að frelsi í húsbíl er ekkert frelsi án öryggis og undirbúnings.
Þegar þú ert undirbúinn og rólegur, þá nýturðu ferðalagsins. Þá er ekkert stress – bara hreyfing og friður.
Það er samt ekki þannig að ef þú undirbýrð þig og gætir fyllsta öryggis að þá sé allt fullkomið – alls ekki.
En það hjálpar rosalega mikið.
Reynsla mín hefur kennt mér að það er ekki nóg að vita bara hvar þessi blessaði krani sé.
Að búa í húsbíl eða ferðast í honum gerir ákveðna kröfu á okkur að vita aðeins meira.
Tala nú ekki um ef við ætlum að ferðast út fyrir landsteinana – þá verðum við að huga vel að öryggisatriðum.
Við hjónin ferðuðumst með tvö börn og við áttuðum okkur fljótt á því að öryggi er númer eitt.
Hvað vil ég fá út úr þessari síðu?
Ég ætla hér á síðunni minni að fjalla um þetta málefni hægt og rólega. Mig langar að reyna að miðla minni reynslu áfram til þín og þeirra sem vilja.
Ég veit að í húsbílaheiminum eru margar reynslubombur og einnig miklir sérvitringar sem þekkja þetta umræðuefni út og inn.
Margt af því sem ég kann og þekki í dag hefur einmitt verið sótt í reynslubanka þannig aðila.
Hér á síðunni finnur þú ekki fullkomnar leiðbeiningar eða glansmyndir. Hér eru bara hagnýt ráð, smá húmor og vonandi innblástur til að ferðast öruggari og afslappaðri.
Lokaorð
Jæja, ég held að þessi fyrsta færsla mín sé orðin meira en nógu löng.
Ég vil þakka þér fyrir að staldra við og lesa þetta yfir.
Ef þú ert nýr í húsbílaheiminum, eða bara forvitinn um hvernig hægt er að ferðast öruggar – þá ertu á réttum stað.
Ef ég næ að hjálpa þér að sleppa stressinu og njóta ferðalagsins aðeins meira, þá hef ég náð markmiðinu mínu.
Takk fyrir innlitið – og vertu velkominn í ferðalagið með mér.
Kveðja,
Ragnar


